Gunnar Helgi Hálfdánarson var kjörin nýr formaður bankaráðs Landsbankans á aðalfundi bankans í dag. Fjórir fulltrúar munu sitja í bankaráðinu en sem skipaðir eru af Bankasýslu ríkisins og einn fulltrúi Skilanefndar Lansdbankans sem fer með 19 prósent hluta í bankanum.
Í stjórnina voru kjörin, auk Gunnars, Haukur Halldórsson og verður hann varaformaður, Guðríður Ólafsdóttir, Sigríður Hrólfsdóttir og Friðrik Pálsson sem er fulltrúi Skilanefndar Landsbanka Íslands hf.Varamenn verða þau Andri Geir Arinbjarnarson, 1. varamaður, Guðrún Ragnarsdóttir, 2. varamaður, Loftur Árnason, 3. varamaður, Þórdís Ingadóttir, 4. Varamaður, Lárentsínus Kristjánsson, varamaður Friðriks Pálssonar.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að Haukur Halldórsson, fráfarandi formaður bankaráðs Landsbankans, hafi flutt skýrslu bankaráðs um starfsemina 2008. Ásmundur Stefánsson bankastjóri kynnti rekstur og reikninga bankans. Um 6,9 milljarða tap varð af rekstri bankans eins og fram hefur komið og kemur það til lækkunar eiginfjár.
Auk annarra hefðbundinn aðalfundarmála, var til umfjöllunar þóknun til bankaráðsmanna sem var, að tillögu hluthafa bankans, ákveðinn 400.000 fyrir formann bankaráðs og 200.000 fyrir aðalmann í bankaráðinu. Að tillögu fráfarandi bankaráðs var gerð ítarlegrar starfskjarastefnu vísað til umfjöllunar nýs bankaráðs.
Þá var ákveðið að nýtt bankaráð muni auglýsa lausa til umsóknar stöðu bandastjóra Landsbankans við fyrsta hentugleika. Fyrirhugað er að aðalfundur Landsbankans fyrir árið 2009 verði haldinn í mars á þessu ári.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna