ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Kveikti í húsinu sínu og flaug á byggingu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:38 › 18. febrúar 2010
Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort fleiri en flugmaðurinn hafi beðið bana.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort fleiri en flugmaðurinn hafi beðið bana.

Lítilli eins hreyfils flugvél var flogið á skrifstofubyggingu í Austin í Texas í dag með þeim afleiðingum að töluverður eldur braust út í byggingunni. Að sögn lögreglu virðist sem flugmaður vélarinnar hafi kveikt í húsinu sínu skömmu áður en hann flaug vélinni á bygginguna.

Að því er fram kemur í frétt Fox News eru skattayfirvöld meðal annars með aðsetur í byggingunni. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort einhverjir aðrir en flugmaður vélarinnar hafi beðið bana. Þó er búið að staðfesta að tveir hafi verið fluttir á sjúkrahús.

Mikill reykur braust út eftir að vélin lenti á byggingunni en hún er staðsett skammt frá flugbraut.

Hér að neðan má sjá myndband af byggingunni eftir að vélinni var flogið á hana:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.