ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Joly eins og hver annar pistlahöfundur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:16 › 18. febrúar 2010
Björn telur að Eva Joly ætti að halda sig við rannsóknina á bankahruninu. Láta Icesave eiga sig.

Björn telur að Eva Joly ætti að halda sig við rannsóknina á bankahruninu. Láta Icesave eiga sig.

„Hvert er hennar framlag?“ spyr Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna á heimasíðu sinni í dag. Hann segir undarlegt hversu margir telji að Eva Joly hafi lagt mikið af mörkum við lausn Icesave-deilunnar.

„Hvaða aðkomu hefur hún haft að því máli aðra en að skrifa greinar og veita fjölmiðlum viðtöl? Mér vitanlega hefur Eva Joly ekki lagt neitt meira af mörkum en hver annar pistlahöfundur í þessu erfiða máli og tillögur hennar hafa oftar en ekki hvorki þótt á góðum rökum reistar né til þess fallnar að styrkja málstað Íslendinga sérstaklega,“ skrifar Björn.

Björn segir að Joly hafi verið fengin til að aðstoða ákæruvaldið við rannsókn á falli bankanna. Það sé hennar sérsvið og þar sé hún góð.

Hann segir lausn Icesave-deilunnar felast í því að Íslendingar byggi mál sitt á raunhæfum lausnum en ekki draumkenndum hugmyndum um auðvelda lausn á málinu. „Eins og Eva Joly og reyndar fleiri virðast halda að sé í spilunum. Það er engum greiði gerður með slíkum málflutningi, hvort sem honum er haldið á lofti af Evu Joly eða öðrum.“

Lausn Icesave-deilunnar er felst í því að Íslendingar byggi mál sitt á raunhæfum lausnum en ekki draumkenndum hugmyndum um auðvelda lausn á þessu erfiðu máli eins og Eva Joly og reyndar fleiri virðast halda að sé í spilunum. Það er engum greiði gerður með slíkum málflutningi, hvort sem honum er haldið á lofti af Evu Joly eða öðrum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.