Nektarnýlenda, betra viðmót afgreiðslufólks og fagmennska er meðal þess sem íslenskir ferðalangar sakna á ferðum sínum um landið. Þetta kemur fram í nýrri könnun um ferðalög Íslendinga árið 2009 sem birt er á vef Ferðamálastofu.
Í niðurstöðum könnunarinnar kennir ýmissa grasa. Frumlegasta hugmyndin um það sem íslenskir ferðalangar sakna helst er þó án nokkurs vafa hugmyndin um nektarnýlendu. Nú er það svo að nektarnýlendur má finna víða í Evrópu og þeir sem hafa farið til Spánar hafa væntanlega rekið augun í einhverjar þeirra.
Rúmlega þúsund manns svöruðu spurningum könnunarinnar og tekur hún yfir fjölmarga þætti sem viðkoma ferðalögum Íslendinga innanlands. Fyrir utan nektarnýlenduna fannst mörgum ýmislegt vanta. Má þar nefna háa verðlagningu og benti einn á að verð ætti það til að tvöfaldast þegar komið er út úr höfuðborginni.
Niðurstöðurnar má sjá í heild sinni hér.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung