ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Dyravörður fær engar bætur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:12 › 18. febrúar 2010

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði rúmlega tvítugan mann á fimmtudag af skaðabótakröfu dyravarðar sem slasaðist í tengslum við árshátíð nemendafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir tæpum þremur árum.

Árshátíðin var haldin á Hótel Selfossi, sama stað og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari bannaði nemendafélaginu nýlega að halda árshátíð sína á. Sú ákvörðun skólameistarans varð til þess að fjöldi nemenda efndi til mótmæla í skólanum, skrópaði í hópum og fór um skólann með háreysti til að leggja áherslu á kröfu sína um að halda árshátíðina á Hótel Selfossi eins og oft hefur verið gert. Guðrún Hrefna sagði meðal annars að skólayfirvöld gætu ekki tekið ábyrgð á skemmtanahaldi fjarri heimahögum auk þess sem það að halda árshátíðina úti á landi gæti leitt til mismununar vegna efnahags nemenda.

Dyraverðir höfðu afskipti af um það bil tvítugum árshátíðargesti sem þeir töldu hafa sparkað í rúðu til að brjóta hana, sprunga hefði verið komin í rúðuna áður en ungi maðurinn bætt við skaðann. Sá hljóp á brott og eltu fimm dyraverðir hann. Einn dyravarðanna hljóp upp að piltinum og greip í öxl hans, svo virðist sem pilturinn hafi slegið frá sér eða baðað út hendi til að sleppa og í framhaldi af því féll dyravörðurinn til jarðar. Samkvæmt vottorði bæklunarskurðlæknis fjórum mánuðum eftir atvikið var dyravörðurinn illa haldinn af hálshrygg, brjósthrygg og mjóbaki vegna meiðsla og þurfti á öflugri sjúkraþjálfun að halda.

Dyravörðurinn sem slasaðist vildi fá bætur vegna tjóns síns en því hafnaði dómari. Kom þar meðal annars fram að annar dyravörður taldi slysið frekar vera dyraverðinum sjálfum að kenna en piltinum og eins þóttu aðfarir dyravarðanna, sem fóru fimm á eftir piltinum, ekki í samræmi við eðli meints brots, sem pilturinn sagðist ekki hafa framið og var aldrei kærður fyrir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.