Breskir skattgreiðendur „verða að endurheimta peningana sína,“ segir fjármálaráðherra Bretlands, Alistair Darling sem að sögn breska dagblaðsins Financial Times í dag er reiðubúinn að endurskoða skilmála IceSave-lánsins og vexti þess.
Darling segir að líklega sé eina leiðin til að endurheimta lánið að fullu að slaka á vöxtunum sem samningurinn kveður á um. Financial Times segir að þetta sé meðal þess sem fram hafi komið í viðræðum við íslensku samninganefndina í vikunni.
Tvær leiðir séu helst ræddar hjá breska seðlabankanum til að lækka vexti á láninu. Önnur felur í sér að engir vextir verði á láninu fyrstu sjö árin sem Íslendingar höfðu samið um að greiða ekki af láninu á meðan sala á eignum Landsbankans fer fram. Hinn möguleikinn er að vextir verði breytilegir á samningstímanum.
Darling segir báðar leiðir séu til þess gerðar að lánið verði endurgreitt að fullu, hins vegar hafi leiðirnar áhrif á heildarupphæðina sem seðlabankinn endurheimtir.
Financial Times segir þetta talsverða stefnubreytingu hjá Darling sem áður hefur haldið því fram fullum fetum að samkomulagið væri sanngjarnt.
Financial Times segir ríkisstjórnir Bretlands og Hollands óttast þjóðaratkvæðagreiðsluna sem stendur til að halda í byrjun mars að því leytinu að verði upphaflegu lögin sem Alþingi samþykkti naumlega felld, standi þjóðirnar frammi fyrir því að fá hugsanlega ekki fullar endurheimtur. Íslensk stjörnvöld óttist þó einnig þjóðaratkvæðagreiðsluna því með henni gæti stjórnin fallið.
Ríkisstjórnir þjóðanna þurfi því nauðsynlega að finna sameiginlega niðurstöðu, hreinlega til að bjarga andliti.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
