Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðs verkfalls flugvirkja 22. – 28. febrúar næstkomandi enda um verkfall að ræða sem mun stöðva flug til landsins. Samtökin telja klárt að ef af verkfallinu verður muni mikil viðskipti fara forgörðum með tilheyrandi tapi fyrir fyrirtæki og þjóðarbú.
„Verkföll sem stöðva flug til landsins eru slæm fyrir orðspor íslenskrar ferðaþjónustu og fæla ferðamenn frá. Það þarf oft ekki annað en orðróm um verkfall til að ferðamenn hætti við enda er flug eina ferðaleiðin til og frá Íslandi,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Þá skora þau á samningsaðila að ná niðurstöðu áður en til verkfalls kemur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs