Dagblöð og vefsíður þeirra eru algengasta uppspretta frétta samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var í Ástralíu. Þetta er þveröfugt við það sem margir ætla, en í ljós kom að vefútgáfa dagblaða styður dagblöðin og bætir líftíma þeirra út daginn eins og segir á vef Blaðamannafélags Íslands, press.is.
Frásögn á vef BÍ er svofelld:
„Öfugt við það sem oft er haldið fram, hafa vefsíður dagblaða aukið möguleika og vægi dagblaðanna mikið ef marka má nýja skýrslu sem birt hefur verið í Ástralíu. Þar kemur fram að í staðinn fyrir að vefsíður dagblaða skemmi fyrir prentuðum útgáfum blaðanna með því að leiða lesendur frá lestri á hinna prentuðu blaða yfir á netið, þá styðji netið við prentútgáfuna og hjálpi henni að halda lífi út í gegnum daginn. Notkun á prentmiðlinum og netinu sé ekki sama eðlis og hlutverk þessara gátta sé misjafnt, en þær styðji hvor aðra. Þessa skýrslu unnu samtökin The Newspaper Works, sem eru frjáls félagssamtök sem einbeita sér að því að kynna dagblaðaiðnaðinn.
Skýrslan byggir á víðtækri könnun þar sem rúmlega 1.000 Ástralar á aldrinum 16 – 69 ára voru spurðir um fjölmiðlanotkun sína. Í ljós kom að dagblöð og vefsíður þeirra eru algengasta uppspretta frétta hjá fólki og þar af var um 37% svarenda sem nefndu dagblöðin ein og sér sem fréttauppsprettu.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun