ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Þingmaður stöðvaði slagsmál á Útvarpi Sögu

16:40 › 17. febrúar 2010
Guðmundur Franklín varð fyrir árás eftir þáttinn.

Guðmundur Franklín varð fyrir árás eftir þáttinn. Mynd DV

  • Eiríkur var allt annað en sáttur við Guðmund í dag.

    Eiríkur var allt annað en sáttur við Guðmund í dag.Mynd DV

  • Illugi Gunnarsson gekk á milli.

    Illugi Gunnarsson gekk á milli.Mynd DV

„Hann grýtti mér á einhverja helvítis hurð,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, fjárfestir og útvarpsmaður, um uppákomu sem varð eftir þátt hans á Útvarpi Sögu í dag. Eiríkur Stefánsson, fyrrverandi verkalýðsforkólfur, réðist á Guðmund og þurfti þingmaðurinn Illugi Gunnarsson og Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður, að stilla til friðar.

Guðmundur og Eiríkur hafa eldað grátt silfur saman að undanförnu og fyrir um viku fór Eiríkur mikinn í pistli á Útvarpi Sögu þar sem hann gagnrýndi Guðmund fyrir að halda á lofti merkjum kvótans. Óhætt er að segja að deilur þeirra hafi náð nýjum hæðum en í dag fékk Guðmundur Sigurð Haraldsson trillukarl í þáttinn sem hófst klukkan 13.

Guðmundur segir í samtali við DV.is að hann hafi ákveðið að leyfa hlustendum að hringja inn og segist hann hafa verið ákveðinn í því, að ef Eiríkur myndi hringja inn, þá þyrfti umræðan að vera málefnaleg. Svo fór að Eiríkur hringdi í þáttinn og segist Guðmundur hafa beðið hann um að beina spurningum sínum að Sigurði. Það hafi Eiríkur ekki gert og því hafi hann ákveðið að slíta símtalinu.

Nokkru síðar fékk Guðmundur miða inn í hljóðverið með þeim skilaboðum að Eiríkur væri kominn á staðinn og vildi ná tali af honum. Þegar þarna var komið við sögu voru þeir Grétar Mar og Illugi komnir í hljóðverið. „Svo klárum við þáttinn og göngum út. Hann hafði komið sér makindalega fyrir í móttökunni og segist þurfa að segja nokkur orð við mig. Ég segi þá við hann að ég hafi ekki tíma þar sem ég þurfi að vera mættur annarsstaðar,“ segir Guðmundur.

Þetta virðist hafa farið illa í Eirík og eftir nokkurt orðaskak fór það svo að Eiríkur ýtti hressilega við Guðmundi. Þeir Grétar Mar og Illugi, auk starfsmanns Útvarps Sögu, gengu í milli og náðu að halda Eiríki frá Guðmundi. Guðmundur segir að þegar þeir slepptu af honum takinu hafi hann kastað fartölvu sinni, sem hann hafði lagt frá sér á borð skömmu áður, í gólfið.

Guðmundur segir að hann hafi gengið út eftir þetta en þeir Illugi og Grétar reynt að róa Eirík niður. Aðspurður hvort hann ætli að leggja fram kæru vegna málsins segir Guðmundur: „Hann þarf að leita sér læknishjálpar.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.