ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Stofnar einkasjúkrahús fyrir útlendinga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:26 › 17. febrúar 2010
Róbert Wessman er eigandi Salt Health.

Róbert Wessman er eigandi Salt Health.

  • Gamla hersjúkrahúsið á Ásbrú.

    Gamla hersjúkrahúsið á Ásbrú.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar (Kadeco) hefur í samstarfi við Iceland Healthcare ákveðið að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á gamla hersjúkrahúsinu að Ásbrú, í Reykjanesbæ. Á sjúkrahúsinu verða þrjár skurðstofur og 35 legurými, þar sem boðið  verður upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga.

Allt að 300 störf munu skapast í tengslum við starfsemina.  Gert er ráð fyrir að þjónustuþegar verði  um 1.000 talsins fyrsta starfsárið en tvöfaldist síðan á næstu tveimur árum, með árlegum tekjum sem áætlaðar eru um 3,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kadeco.

Fyrirhugað er að nýta gamla hersjúkrahúsið að Ásbrú en ráðist verður í umfangsmiklar endurbætur á því undir stjórn Kadeco. Framkvæmdir við sjúkrahúsið munu hefjast á öðrum ársfjórðungi 2010. Jafnframt verður notast við íbúðarhúsnæði á svæðinu fyrir sjúklinga og aðstandendur. Val á staðsetningu starfseminnar réðst af miklu leiti af þeirri miklu þekkingu og reynslu af þjónustu við erlenda ferðamenn sem er á svæðinu og mun nýtast vel við ýmsa tengda þjónustu.

Gera má ráð fyrir að erlendir sjúklingar sem sækja sjúkraþjónustu utan heimalands ferðist með aðstandendum og dvelji að jafnaði í tvær vikur eftir meðferð í endurhæfingu. Er búist við því að umtalsverðar gjaldeyrisstekjur geti því skapast og má ætla að árlegar rekstrartekjur af starfseminni geti numið allt að 3,5 milljörðum króna á ári. Þá eru ótaldar tekjur af ferðatengdri starfsemi og þjónustu. Allt að 300 störf munu skapast við endurbyggingu, starfsemi sjúkrahússins og afleidd störf á svæðinu vegna ýmissrar þjónustu. 

Iceland Healthcare mun í fyrstu sérhæfa sig í liðskiptaaðgerðum, offituaðgerðum og meðferðum því tengdu. Félagið mun leggja áherslu á markaðssetningu í Noregi og Svíþjóð en fljótlega einnig í Bretlandi. Í framtíðinni eru einnig uppi áform um að bjóða þjónustu félagsins til Bandaríkjamanna.

Framkvæmdum vegna umfangsmikilla endurbóta á sjúkrahúsinu er stjórnað af Kadeco eins og áður segir.  Fasteignafélagið Seltún, sem er í meirihlutaeigu Kadeco, mun leigja það til Iceland Healthcare og sjá um fjármögnun endurbóta. Iceland Healthcare er í eigu Salt Health, sem fer með eignarhald í umræddu rekstrarfélagi en kemur ekki með beinum hætti að fjármögnun eða fjárfestingu í endurbyggðu sjúkrahúsi. Salt Health er í meirihlutaeigu Róberts Wessman og Otto Nordhus.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.