ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Stjörnukokkur rekinn fyrir að mæla með kattakássu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:27 › 17. febrúar 2010
Gæludýr, ekki góðgæti.

Gæludýr, ekki góðgæti. Mynd: photos.com

Ítalski stjörnukokkurinn Beppe Bigazzi hefur verið rekinn af sjónvarpsstöðinni RAI eftir að hann bauð, að eigin sögn, upp á gríðarlega girnilega uppskrift að kattakássu í ítalska matarþættinum La Prova del Cuoco, sem er ítalska útgáfan af Einn, tveir og elda sem kannski einhverjir muna eftir hér á landi.

The Times greinir frá því að öll skiptiborð sjónvarpsstöðvarinnar hafi gjörsamlega logað þar sem reiðir hlustendur, kattavinir og dýraverndunarsamtök hringdu inn með kvartanir sínar.

Bigazzi sagði að kattapottrétturinn væri frægur réttur í sínu heimahéraði og sagði ketti vera sérlegt hnossgæti.

„Mun betri en önnur dýr,“ sagði hinn 77 ára Bigazzi í þættinum og sagði kettina skáka kjúklingum, kanínum og dúfum.

Hann sagði að til að ná sem bestu bragði úr kjötinu þyrfti að láta það liggja í lindarvatni í þrjá daga.

Heilbrigðisráðherra Ítalíu sagðist aldrei hafa heyrt annað eins, að sjónvarpsmaður færi í almenningssjónvarp og segði fólki frá hversu gómsætir kettir væru.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.