Steingrímur getur ekki sagt til um það hvenær niðurstaða liggur fyrir. Tíminn sé hinsvegar mjög skammur. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir
„Ég gef lítið út um það,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra þegar hann er spurður hvort hann sé bjartsýnn á að Hollendingar og Bretar fallist á nýjar samningaviðræður við Íslendinga vegna Icesave-málsins. Samninganefnd frá Íslandi flaug til Lundúna á mánudagsmorgun til fundar með fulltrúum Breta og Hollendinga.
„Það er verið að vinna í þessu og okkar lið er úti í London. Í dag var verið að vinna úr niðurstöðum fundanna í gær og í fyrradag og síðan voru ákveðin samskipti í gangi undir kvöld,“ segir Steingrímur sem átti símafund með samninganefndinni í dag. Hann segir að áframhaldandi fundarhöld séu á dagskrá í fyrramálið.
Í Morgunblaðinu í dag kom fram að samninganefndin í London hafi haldið því á lofti að komi til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-málið verði slík lög að öllum líkindum felld með 80 prósent atkvæða. Eru Bretar og Hollendingar sagðir áhyggjufullir vegna þessa en engar upplýsingar liggja hinsvegar fyrir um viðbrögð Breta og Hollendinga við mögulegum samningaviðræðum.
Steingrímur getur ekki sagt til um það hvenær niðurstaða liggur fyrir. „Það er engin leið að segja til um það. Tíminn er hinsvegar mjög skammur til að láta þetta skýrast.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna