29 ára gömul kona frá Grimsby á Englandi var sektuð á dögunum þegar sextán mánaða gamall sonur hennar missti bananahýði. Konan er skiljanlega mjög ósátt við sektina en lögreglan segir að um hefðbundin vinnubrögð sé að ræða.
Í samtali við breska blaðið Telegraph segir konan, sem heitir Kristy Allen, að hún hafi verið úti að ganga með syni sínum sem var í barnavagni. Hún segist hafa gefið honum banana þar sem hann var svangur en sonur hennar líklega misst hýðið þegar hann var búinn með bananann.
Lögregluþjónn sem var í reglubundnu eftirliti sá þegar hýðið datt af barnavagninum en sjálf tók Allen ekki eftir því. Var henni því réttur 50 punda sektarmiðið sem eru rúmlega tíu þúsund krónur íslenskar.
Að sögn lögreglu viðurkenndi konan brotið og segir talsmaður hennar að bæjaryfirvöld og lögregla hafi í samvinnu unnið ötullega að því að taka hart á slíkum brotum. Var því konunni ekki veitt nein undanþága.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu