ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Pýramídarnir í Giza og Pizza Hut

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:25 › 17. febrúar 2010
  • Horft út af pizzustaðnum. Útsýnið yfir pýramídana er stórkostlegt frá Pizza Hut.

    Horft út af pizzustaðnum. Útsýnið yfir pýramídana er stórkostlegt frá Pizza Hut.

  • Spfinxinn og pizzan. Fæstir vita að fáein skref skilja sfinxinn og Pizza Hut að. Enda hafa flestir einungis séð ljósmyndir á borð við þessa.

    Spfinxinn og pizzan. Fæstir vita að fáein skref skilja sfinxinn og Pizza Hut að. Enda hafa flestir einungis séð ljósmyndir á borð við þessa.

Margir halda að pýramídarnir í Giza í Egyptalandi liggi einir í víðum faðmi eyðimerkurinnar. Ástæðan er að flestar ljósmyndir sem við sjáum af þessum ótrúlegu undrum fornaldarinnar eru teknar frá sama sjónarhorni, hliðinni sem snýr út að eyðimörkinni.

Fæsta langar til að smella myndum af pýramídunum frá þeirri hlið er snýr að úthverfum stórborgarinnar Kaíró. Það virðist á einhvern hátt eyðileggja fyrir ferðalöngum þá einföldu sýn er þeir hafa af pýramídunum. Líkt og þeir vilji flýja raunveruleikann og ímynda sér að ríki faróanna sé enn þá við lýði.

Mörgum ferðalöngum þykir þannig grátlegt að horfa upp á nútímabyggingarnar er hafa hrannast upp við rætur pýramídanna. Í þessum byggingum er mikil starfsemi í kringum túrismann, en Giza er einn vinsælasti ferðamannastaður í heimi. Einnig hefur það verið erlendum ferðamönnum hinn mesti þyrnir í augum að sjá að skyndibitakeðjurnar KFC og Pizza Hut selja mat í nokkurra skrefa fjarlægð frá djásnum fornegyptanna.

Blaðamaður rakst inn á spjallsvæði á tjáskiptasíðunni reddit.com þar sem nábýli pýramídanna og Pizza Hut var rætt. Ónefndum netverja leist illa á fyrirkomulagið og spurði: „Hverjum datt eiginlega í hug að reisa pýramída við hliðina á pizzastað?“.

Áslaug Einarsdóttir kvikmyndagerðarkona ferðaðist til Egyptalands fyrir nokkrum árum. „Þetta var eins og vera persóna í súrrealskri bíómynd að sitja á Pizza Hut og horfa á Sfinxinn fyrir utan gluggann. Þarna er ákaflega sérstök menningarleg blanda og svæðið í kringum pýramídanna alltaf að verða vestrænna,“ segir Áslaug.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.