ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Pyntaði dóttur sína vegna stafrófsins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:30 › 17. febrúar 2010
Tabor hefur bæði þjónað í Afganistan og í Írak fyrir bandaríska herinn. Heraginn á heimilinu ekki liðinn.

Tabor hefur bæði þjónað í Afganistan og í Írak fyrir bandaríska herinn. Heraginn á heimilinu ekki liðinn. Mynd tengist efni fréttar ekki

Liðþjálfi í bandaríska hernum hefur verið ákærður fyrir að grimmúðlega pyntingu á fjögurra ára dóttur sinni. Hinn 27 ára gamli Joshua Tabor hélt fram sakleysi sínu í gær þegar hann var dreginn fyrir dómara vegna málsins. Honum er gefið að sök að hafa beitt vatnspyntingartækni til að refsa dóttur sinni sem átti í erfiðleikum með stafrófið.

Hann er sakaður um að hafa rifið í höfuð dóttur sinna og dýft því öfugu ofan í eldhúsvask fullan af vatni af því að hún kunni ekki stafrófið.

Tabor vissi að dóttir sín væri vatnshrædd og því taldi hann þetta viðeigandi refsingu.

Stúlkunni hefur verið komið fyrir hjá ömmu sinni og afa á meðan málið fer í gegnum dómskerfið í Washington.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.