Ríkisútvarpið ætlar að leggja niður svæðisbundnar útsendingar á landsbyggðinni og hyggst með því spara liðlega 30 milljónir króna. Ráðgert er að hefja útsendingar á landsbyggðarfréttatíma í byrjun næsta mánaðar, annaðhvort á Rás 1 eða Rás 2. Fréttaritarar fengu tilsögn hjá Gísla Einarssyni um hvernig þeir gætu gert allt sjálfir.
Mikillar óánægju gætir á landsbyggðinni vegna niðurskurðar Ríkisútvarpsins á starfsemi svæðisstöðvanna á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. Gagnrýni sveitarstjórnarmanna og íbúa á landsbyggðinni hefur þó beinst að stjórnendum RÚV fremur en stjórnvöldum, sem skorið hafa niður framlög til RÚV rétt eins og annarra opinberra fyrirtækja og stofnana, meðal annars innan mennta- og heilbrigðiskerfisins.
Magnús Már Þorvaldsson, fulltrúi hjá Vopnafjarðarhreppi, sendi útvarpsstjóra og öðrum stjórnendum hjá RÚV, sem og þingmönnum Norðausturkjördæmis, tölvupóst og spurði ítrekað um ástæður niðurskurðarins. „Ég er einn af eigendum RÚV ohf. og taldi mig eiga rétt á svörum. Á því varð óeðlilegur dráttur þrátt fyrir að fyrirspurn mín hefði verið ítrekuð margoft. Svar barst þó loks í fyrradag.“
Í svari til Magnúsar Más segir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri RÚV ohf., að heildarsparnaður af því að loka öllum starfsstöðvum RÚV á landsbyggðinni yrði um 96 milljónir króna að teknu tilliti til auglýsingatekna þeirra. „Með þeim aðgerðum sem nú er verið að fara í er áætlaður sparnaður að teknu tilliti til auglýsingatekna um 31 milljón króna,“ segir í bréfi Bjarna til Magnúsar.
Ítarlega er fjallað um málið í DV í dag



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
