ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Ljósi varpað á hrottalega tilraunastarfsemi Japana

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:38 › 17. febrúar 2010
Frá yfirheyrslu í Unit 731.

Frá yfirheyrslu í Unit 731.

Nú þegar 65 ár eru bráðum liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar vekur nafnið “Unit 731” enn óhug í hugum margra Japana. Það er kannski ekkert skrítið þar sem flestir tengja það við hrottalega tilraunastarfsemi Japana á stríðsföngum. Líta margir svo á að það sem þar fór fram, séu einhverjir verstu stríðsglæpir í sögu mannkyns.

Nú hafa japönsk yfirvöld gefið grænt ljós á að mannabein, sem grunur leikur á að séu úr fórnarlömbum þessarar grimmu tilrauna, verði rannsökuð. Frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar hefur málið verið sveipað mikilli dulúð og töluverð leynd hvílt yfir því hvað raunverulega fór fram á rannsóknarstofunum sem staðsettar voru í Pingfang-héraði sem nú tilheyrir Kína.

Flestir sem þekkja til sögunnar eru þó á sama máli um að þarna hafi verstu stríðsglæpir mannkynssögunnar verið framdir. Í frétt í vefútgáfu breska blaðsins Telegraph kemur fram að tilraunirnar hafi farið fram á tugum þúsunda stríðsfanga. Var fólk meðal annars grafið lifandi, lofti sprautað í æðar þeirra og það sett í háþrýstiklefa – allt í þágu vísindanna.

Nú standa vonir til að ljósi verði loks varpað á örlög fjölmargra þeirra sem pyntaðir voru á tilraunastofunum en um er að ræða bein frá 100 manneskjum sem fundust í fjöldagröf árið 1989. Mörg þeirra bera merki um hrottalegar tilraunir.

Þó svo að japönsk yfirvöld hafi nú heitið því að rannsóknir verði gerðar á beinunum hefur japanska heilbrigðisráðuneytið ítrekað synjað beiðnum frá ættingjum þeirra sem létust á tilraunastofunum um að DNA-próf verði gerð á beinunum.

Til marks um það hversu viðkvæmt málið er í Japan hafa margir japanskir stjórnmálaflokkar neitað því staðfastlega að nokkuð vafasamt hafi farið fram á tilraunastofunum. Þá er ekkert minnst á þær í japönskum kennslubókum. „Flestir Japanir trúa ekki að þetta hafi átt sér stað. Þeir sem trúa því vilja gleyma því hvaða voðaverk Japanir frömdu í stríðinu,“ segir Tsuyoshi Amemiya stríðssagnfræðingur í samtali við Telegraph.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.