Yfirvöld í Rússlandi hefur handtekið tölvuþrjótinn sem gerði allt vitlaust í miðborg Moskvu í síðasta mánuði þegar honum tókst að láta svæsna klámmynd rúlla á flennistóru auglýsingaskilti við eina fjölförnustu götu borgarinnar.
Maðurinn sem um ræðir er fertugur og atvinnulaus frá Novorossiysk. Sérdeild sem rannsakar tölvuglæpi fyrir innanríkisráðuneyti Rússlands sá um að handataka manninn og ber það vott um hversu mikla áherslu yfirvöld lögðu á að hafa hendur í hári hins klámfengna hakkara.
Erlendir fréttaskýrendur lýstu því sem svo þann 14. janúar síðastliðinn að Moskva hafi hreinlega stöðvast í 20 mínútur á meðan klámmyndin spilaðist á risaskjánum. Vegfarandi einn tók atvikið upp á farsíma sinn, setti myndbandið á Netið þar sem það sló í gegn á meðan lögreglan og yfirvöld klóruðu sér í hausnum.
Maðurinn mun hafa játað glæpinn samkvæmt fréttum í Rússlandi. Hann sagði þó að sig hefði ekki grunað að myndbandið myndi birtast á risaskjánum í miðborg Moskvu. Hafði hann ætlað að láta það birtast á skjá í verslun í Moskvu þar sem hann taldi að myndskeiðið myndi skemmta fólki.
Maðurinn virðist hafa hakkað sig inn í tölvukerfi auglýsingastofunnar sem hefur yfirumsjón með skiltinu og komist inn á auglýsingalistann.
Hann á nú yfir höfði sér tveggja ára fangelsi fyrir tölvuglæpi og ólöglega dreifingu á klámefni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung