Ásbirni Óttarssyni, þingmanni Sjáflstæðisflokksins, þykir skjóta skökku við að segja upp fjölda starfsmanna fréttastofu og landshlutastöðva RÚV á sama tíma og 26 manns starfa hjá markaðsdeild stofnunarinnar.
Ásbjörn tók málið upp í upphafi þingfundar á Alþingi í dag. Hann sagði að brýnt væri að styðja fréttaflutning Ríkisútvarpsins vegna þjóðfélagsástandsins og því væri um rangar áherslur að ræða í niðurskurði hjá RÚV. Hann gat þess að einnig mætti RÚV skera niður kaup á erlendu sjónvarpsefni þegar niðurskurður blasi við.
DV segir frá því í dag að í næsta mánuði verði komið á fót landsbyggðarfréttatíma á Rás 1 eða Rás 2 um leið og svæðisbundnar útsendingar verða lagðar niður. Þá er ætlunin að koma á landsbyggðarþætti í sjónvarpi síðar á árinu. Í svari Bjarna Guðmundssonar framkvæmdastjóra RÚV við fyrirspurnum Magnúsar Más Þorvaldssonar á Vopnafirði kemur fram að stöðugildi verði um 10 á landsbyggðinni eftir niðurskurð hjá RÚV og með núverandi aðgerðum sparist 31 milljón króna við rekstur svæðisstöðvanna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna