Myntkörfulánin í óvissu. Héraðsdómur úrskurðaði að tenging láns við gengi á erlendri mynt sé ólögmæt. Mynd: Photos.com
Sá sem tók 2,7 milljón króna gengistryggt myntkörfulán árið 2007 skuldar í dag 3,3 milljónum krónum meira en sá sem valdi að taka verðtryggt lán. Lántakendur bíða nú afgreiðslu Hæstaréttar en héraðsdómur hefur úrskurðað að tenging lána við gengi sé ólögmæt. Lektor við Háskóla Íslands segir að ef til vill þurfi að meta hvern samning fyrir sig, mikil óvissa sé uppi.
„Mér sýnist þetta ráðast af því hvort lánin teljist vera í íslenskum krónum eða erlendum gjaldmiðli. Ég hef auðvitað ekki séð nema örfáa samninga og þeir eru nokkuð breytilegir. Samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið í fjölmiðlum virðast þeir jafnvel mismunandi innan einstakra fjármálafyrirtækja,“ segir Eiríkur Jónsson, lektor og umsjónamaður með kennslu í neytendarétti við Háskóla Íslands.
Hann segir mikla óvissu ríkja uppi um það hversu víðtæk áhrifin verði staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms. „Ef þú skoðar dóminn þá er niðurstaðan sú að samningurinn sem um ræddi hafi verið í íslenskum krónum. Dómurinn á ekki við um samninga sem eru klárlega í erlendum gjaldmiðli,“ segir Eiríkur en talið er að ríflega 40 þúsund manns hafi tekið lán í erlendri mynt eða með tengingu við erlenda gjaldmiðla. „Í þessu máli virðist hafa verið lánað í íslenskum krónum. Það er skýrt, miðað við dóminn, að lánið er í krónum og þær má ekki tryggja með gengi,“ segir Eiríkur í DV í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna