Það kennir ýmissa grasa í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var kona handtekin fyrir fjársvik á gististað í gær þar sem hún reyndi að nota stolið kreditkort til að borga fyrir gistinguna.
Í herbergi hennar fundust einnig munir sem hún gat ekki gert grein fyrir.
Kannabis í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Karl um fertugt var færður á lögreglustöð i tengslum við rannsókn málsins og hefur hann játað aðild sína að málinu.
Innbrot í bíla
Brotist var inn í nokkra bíla á ýmsum stöðum í Reykjavík í gær en átta slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. Úr þeim var m.a. stolið fartölvu, myndavél, radarvara og greiðslukorti. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.
Rúðubrjótur tekinn
Rúðubrjótur var handtekinn í Reykjavík í nótt. Sá braut rúðu í fjölbýlishúsi en ekki er vitað hvað honum gekk til. Rúðubrjóturinn, karl á fimmtugsaldri, var færður í fangageymslu en hann var ölvaður.
Dópaðir í umferðinni
Fimm ökumenn voru teknir í Reykjavík í gær og nótt fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Þetta voru tveir piltar um tvítugt og karl á sextugsaldri og tvær konur á þrítugsaldri en önnur þeirra lenti í umferðaróhappi. Sú var með barn sitt í bílnum en meiðsli beggja voru minniháttar, eftir því að best er vitað. Þá var einn ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur í gær en um var ræða fertuga konu sem var stöðvuð í Kópavogi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs