ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Fáðu bestu vextina

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
20:09 › 17. febrúar 2010
Gott ráð er að leggja alltaf tíu prósent launa sinna inn á sérreikning og nota bara peningana ef þörf krefur.

Gott ráð er að leggja alltaf tíu prósent launa sinna inn á sérreikning og nota bara peningana ef þörf krefur. Mynd Photos

Ríkisskuldabréf eru ef til vill öruggasta og hagstæðasta fjárfestingin fyrir þá sem hafa byggt um digran varasjóð. Vextirnir eru betri en af verðtryggðum bókum. Ingólfur Ingólfsson fjármálaráðgjafi ráðleggur fólki að byrja á því að leggja 10 prósent launa sinna fyrir í hverjum mánuði og grípa aðeins til þess fjár ef þörf krefur. Með tímanum safnist upp sparnaður sem fólk geti svo notað til áhættulítilla fjárfestinga.

„Ég myndi setja helminginn inn á höfuðstól lána, ef ég væri með lán, en hinn helminginn myndi ég setja í ríkisskuldabréf,“ segir fjármálaráðgjafinn Ingólfur H. Ingólfsson hjá Spara.is, spurður hvar hann myndi sjálfur leggja inn spariféð sitt, ef hann ætti milljón aflögu.

Þó að á Íslandi sé kreppa er nokkur hópur fólks sem sparar og leggur fé til hliðar í hverjum mánuði. Þar sem vextir hafa tekið miklum breytingum undanfarin misseri er ekki sjálfgefið hvar hagstæðast er að leggja þá inn. Ingólfur segir brýnt að horfa ekki bara á vaxtaprósentuna þegar fólk er að spara til lengri tíma. „Þú færð jafnmikið fyrir fimm prósent vexti í tíu ár og tíu prósent vexti í fimm ár,“ bendir Ingólfur á.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.