„Ég hef velt því fyir mér að bjóða þeim í beina útsendingu til að leysa þetta. Mér finnst það koma vel til greina,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, um uppákomuna sem varð milli Guðmundar Franklíns Jónssonar og Eiríks Stefánssonar í dag en eins og komið hefur fram réðst Eiríkur á Guðmund eftir að þætti Guðmundar lauk.
Eftir að þætti Guðmundar Franklíns lauk í dag kom Eiríkur í höfuðstöðvar Útvarps Sögu og vildi ná tali af Guðmundi en þeir hafa eldað grátt silfur saman að undanförnu þar sem þeir eru ósammála um kvótakerfið. Hafa þær deilur að mestu leyti farið fram á Útvarpi Sögu.
Aðspurð hvaða augum Arnþrúður líti árásina, þar sem þeir eru báðir útvarpsmenn á Útvarpi Sögu, segir Arnþrúður auðvitað sé það ávallt óæskilegt að til handalögmála komi. „Ég er nú fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður þannig að þetta er nú ekki alveg samkvæmt mínum línum,“ segir Arnþrúður og bætir við að hún vonist til að málið leysist farsællega.
Tengd frétt:
Þingmaður stöðvaði slagsmál á Útvarpi Sögu





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna