ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Aukin harka gegn útlendingum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:01 › 15. febrúar 2010
Valur, Thais, Magnús og Ari. Fjölskyldan á Holtabrún í Bolungarvík búa við mikla óvissu vegna útlendingalaga.

Valur, Thais, Magnús og Ari. Fjölskyldan á Holtabrún í Bolungarvík búa við mikla óvissu vegna útlendingalaga. Mynd Halldór Sveinbjörnsson

„Ég held að við munum fara að sjá miklu fleiri dæmi af þessu tagi,“ segir Sabine Leskopf, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna. DV fjallaði á föstudaginn um unga fjölskyldu í Bolungarvík sem verður hugsanlega stíað í sundur. Valur Magnússon og kona hans, Thais Marques de Freitas frá Brasilíu, hafa verið gift í fjögur ár og eiga tvö börn saman. Svo gæti hins vegar farið að Thais fái ekki dvalarleyfi sitt framlengt, en Útlendingastofnun hefur sett fram skilyrði um ákveðnar tekjur sem fjölskyldan uppfyllir ekki.

Sabine segir að hún hafi fundið fyrir að aukin harka sé að færast í útlendingamálin. „Þetta hefur verið að breytast. Áður stóð á heimasíðu Útlendingastofnunar að framfærsluákvæði giltu ekki fyrir maka íslenskra ríkisborgara. Síðan hefur þessi texti horfið. Því gæti verið að þessu hafi verið breytt og lögunum sé nú beitt á annan hátt,“ segir Sabine. Hún segir að aðgerðir sem þessar, að splundra fjölskyldum, brjóti hugsanlega gegn mannréttindasáttmálum, vegna ákvæða sem kveða á um sameiningu fjölskyldunnar.

Auknu atvinnuleysi gætu fylgt miklu fleiri dæmi í þessum dúr, því að jafnvel þótt framfærslan væri fullnægjandi myndi það ekki duga fyrir framlengingu dvalarleyfis, ef hún samanstæði af bótum.
Sabine spáir því að einstaklingar af erlendum uppruna sem hafa viðurværi sitt af bótum verði í auknum mæli látnir fara af landi brott, dvalarleyfi þeirra verði ekki framlengd. Og jafnvel þótt erlendir ríkisborgarar vinni fyrir sér mun versnandi efnahagsástand hafa áhrif á þessi mál. Sabine nefnir því til stuðnings dæmi taílensku konunnar sem vann hjá Landspítalanum en var synjað um framlengingu dvalarleyfis vegna ónægrar framfærslu, en rætt var um það mál í fjölmiðlum. „Það er mjög merkilegt; ríkisstarfsmaður ekki talinn vera með næga framfærslu til að dvelja hér á landi,“ segir Sabine.

DV ræddi á föstudaginn við hjón sem búa í Kópavoginum sem hafa kært Útlendingastofnun til Héraðsdóms Reykjavíkur og verður málið þingfest á þriðjudaginn. Líkt og með Val og Thais er maðurinn í því dæmi íslenskur og konan brasilísk. Konunni var synjað um dvalarleyfi á dögunum, þrátt fyrir að þau hafi verið gift í áraraðir. Umsókninni um dvalarleyfið var synjað vegna þess að íslenskur eiginmaður konunnar er á sakaskrá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.