ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Vill frekar vera skammaður fyrir að ganga of langt en öfugt

19:02 › 13. febrúar 2010
Helgi vill frekar vera skammaður fyrir að ganga of langt en öfugt.

Helgi vill frekar vera skammaður fyrir að ganga of langt en öfugt. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

„Ég reyni að bera jafna virðingu fyrir öllum, sama hvaða stöðu þeir gegna eða hversu mikla peninga þeir eiga og að sama skapi vil ég frekar vera skammaður af einhverjum fyrir að hafa gengið hart fram en öfugt,“ segir Helgi Seljan í einlægu viðtali í helgarblaði DV.

Þar ræðir Helgi um reiðina, óregluna, föðurhlutverkið sem hann óttaðist, RÚV, kreppuna og starf sitt sem fjölmiðlamaður í hringiðu Icesave-umræðu. Framganga hans í sjónvarpinu hefur oft skapað umræður og hann er ekki þekktur fyrir að sleppa viðmælendum sínum létt. Sjálfur segist hann geta verið fljótfær en að hann vilji frekar spyrja of mikið en of lítið.

„Það er auðvitað ekki hægt að gera öllum til hæfis, sérstaklega á þessum tímum. Við reynum hins vegar öll að gera okkar besta og helst aðeins betur. Gagnrýnina má þó oft flokka niður eftir því hvar í flokki menn hafa lagt inniskóna sína, en það auðvitað ekkert algilt.

Í dag er alltaf reynt að klína pólitískum tengslum á alla blaðamenn og á þá skotið að þeir vildu helst vera á þingi, enda er ennþá stór hluti þjóðarinnar sem kýs að afsala sér til stjórnmálaflokka með von um endurgjald og fengið gleraugu í stíl sem stjórna því sem þau sjá eða sjá ekki. Ég held að þetta sé samt mikið að breytast. Það eru að koma upp mikið af ungum góðum blaðamönnum sem er alveg sama um einhverja flokkapólitík og hvort fréttirnar sem þeir skrifa henti skoðunum flokkanna eða yfirleitt einhverjum.

Þjóðin er að gera sér grein fyrir hvað blaðamennska skiptir miklu máli og sú uppgötvun er eitt af því fáa jákvæða við þetta hrun. Landsmenn spurja ekki lengur af hverju við erum að fjalla um eitthvað heldur frekar af hverju við erum ekki að fjalla um eitthvað. Það er engin illgirni fólgin í því að benda á það sem er að í samfélaginu. Nema síður væri,“ segir Helgi.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.