Allt í stakasta lagi. Clifford telur að myndirnar séu sviðsettar en umboðsmaður Terry þvertekur fyrir það.
Bresk slúðurblöð og hinir ýmsu netmiðlar hafa í dag birt myndir af John Terry, leikmanni Chelsea og enska landsliðsins, með fjölskyldu sinni þar sem þau dvelja í Dubai. Terry flaug til Dubai á fimmtudag til að reyna að bjarga hjónabandi sínu eftir fregnir af framhjáhaldi hans með kærustu liðsfélaga síns, Wayne Bridge. Virðist Terry hafa gengið vonum framar. En ekki er allt sem sýnist.
Það er að minnsta kosti mat breska almannatengslasérfræðingsins Max Clifford sem telur að myndirnar séu dæmi um „ódýra“ og „viðbjóðslega“ tilraun Johns Terry til að líta vel út fyrir augum almennings, eða dæmigert “PR-stunt” eins og Clifford segir sjálfur í samtali við Sky News.
Clifford er að vísu ekki alveg hlutlaus þar sem hann sá um almannatengslin fyrir Vanessu Perroncel, fyrrverandi kærustu Bridge sem Terry á að hafa haldið framhjá með. Clifford er hinsvegar ekki einn um þessa skoðun og telja margir að eitthvað gruggugt sé á seyði.
Myndirnar sem birtar hafa verið sýna, svo ekki verður um villst, að allt sé í stakasta lagi hjá hjónunum sem vekur furðu margra, enda framhjáhald almennt litið alvarlegum augum.
Clifford segir í samtali við Sky News að Terry hafi þurft að vinna eiginkonu sína aftur á sitt band og hefði hann verið í sporum almannatengslafulltrúa Terry hafi hann gert eitthvað allt annað og tekið fyrir allar myndatökur. Bætir hann við að eiginkona Terrys komi út „eins og konan sem standi við bakið á eiginmanni sínum, sama hvað gengur á.“ Myndirnar líti hinsvegar mjög illa út fyrir hjónin.
Phil Hall, umboðsmaður Terrys, þvertekur hinsvegar fyrir það að myndirnar séu sviðsettar og Terry hjónin hafi ráðið einhvern til að taka myndirnar. „Þau eru ekki að fara loka sig inni á hótelherbergi. Þau vilja bara eiga notalegt frí saman með börnunum sínum,“ segir hann.
Um það verður hinsvegar ekki deilt að árangur Terrys við að ná eiginkonu sinni á sitt band er eftirtektarverður sé litið framhjá öllum samsæriskenningum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung