ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Reyndi að ræna lokuðum banka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:51 › 13. febrúar 2010

Starfsfólk banka í Kirchheim í Austurríki vissi vart hvernig það ætti að bregðast við þegar bankaræningi hamraði á dyr bankans með skammbyssu og heimtaði að sér yrði hleypt inn. Ræninginn hafði greinilega ekki kynnt sér til hlítar opnunartíma bankans því honum var lokað óvenjulegu snemma þennan dag vegna starfsmannaþjálfunar.

Ræninginn huldi andlit sitt með Barack Obama-grímu. Hann gafst að lokum upp á því að reyna að komast inn í bankann til að ræna hann og flúði. Hann náðist þó á öryggismyndavél bankans og er hans leitað. Nokkrir starfsmenn töldu að þetta hefði verið partur af þjálfuninni því að bankinn hafði verið rændur tvisvar í desember og janúar síðastliðnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.