ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Morðingi Baby P varð fyrir fólskulegri árás

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:50 › 13. febrúar 2010
Steven Barker á sér fáa vini í Wakefield-fangelsinu og er hataður af samföngum sínum.

Steven Barker á sér fáa vini í Wakefield-fangelsinu og er hataður af samföngum sínum.

  • Peter Connelly var fórnarlamb linnulausra barsmíða af hálfu stjúpföður síns.

    Peter Connelly var fórnarlamb linnulausra barsmíða af hálfu stjúpföður síns.

Steven Barker, sem nú afplánar lífstíðardóm fyrir morðið á Baby P, varð fyrir fólskulegri árás í Wakefield-fangelsinu á dögunum. Var brennandi heitri blöndu af sykri og vatni skvett yfir hann og brenndist Barker mikið í andliti og á höndum.

Mál Baby P vakti gríðarlega athygli þegar fjölmiðlar um allan heim fjölluðu um það en hann var fórnarlamb linnulausra barsmíða af hálfu Barkers sem að lokum drógu hann til dauða, sautján mánuðum eftir að hann kom í heiminn.

Vegna alvarleika málsins á Barker sér fáa vini í fangelsinu og var árásarmanni hans hampað sem hetju í Wakefield-fangelsinu eftir árásina. Er talið að brunasárin á andliti Barkers séu það slæm að hann mun ganga með ör eftir árásina það sem hann á eftir lifað.

„Að segja að Barker sé ekki vel liðinn er mjög vægt til orða tekið – hann er hataður. Allir þeir sem afplána í fangelsinu hata hann af miklum eldmóð. Þegar hann kom hingað vissu allir hvað hann hafði gert. Þú ert brennmerktur ef þú hefur svona glæp á samviskunni,“ segir heimildarmaður breska blaðsins The Sun.

Blandan sem árásarmaður Barkers notaði er líkt við napalm-sprengju. Brennandi heitur sykurinn heldur áfram að brenna sig inn í húðina og getur valdið miklum kvölum sé magnið nógu mikið.

Smelltu hér til að lesa söguna um Baby P.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.