Vatnslitamálverk eftir nasistaleiðtogann Adolf Hitler verður selt á uppboði á næstunni. Áður en Hitler náði frama í stjórnmálum í Þýskalandi var hann listmálari og hafa nokkur málverk eftir hann verið seld á uppboðum í gegnum tíðina.
En málverkið sem boðið verður upp á næstunni er merkilegt, ekki síst í ljósi þess að grunur leikur á að það hafi hangið upp á vegg á skrifstofu eins frægasta geðlæknis allra tíma, Sigmunds Freuds.
Sigmund Freud bjó í austurrísku borginni Vín árið 1910, eða á sama tíma og Adolf Hitler bjó í borginni. Á þeim tíma var Adolf Hitler að reyna að hasla sér völl sem listmálari og er talið að starfsmaður á læknastofu Freuds hafi keypt verkið af Hitler. Er verkið vandlega merkt nafni læknastofu Freuds aftan á og sömuleiðis vandlega merkt Adolf Hitler framan á.
Verkið var flutt frá Vínarborg til Ítalíu skömmu eftir síðari heimsstyrjöldina. Freud neyddist til að flýja frá Austurríki til Englands þegar ofsóknir nasista gegn gyðingum hófust á fjórða áratug liðinnar aldar. Vilja einhverjir meina að Sigmund Freud hafi sjálfur keypt verkið af Hitler þó það muni líklega aldrei fást staðfest.
„Gyðingar voru í raun í miklu uppáhaldi hjá Hitler því það voru þeir sem keyptu af honum listaverk og aðstoðuðu hann við að feta braut sína sem listmálari – það hljómar hálf kaldhæðnislega í ljósi þess hvernig tuttugasta öldin þróaðist,“ segir Richard Westwood-Brookes, frá Mullocs uppboðsfyrirtækinu, sem nú á verkið. Vonast fyrirtækið til að fá að minnsta kosti tvær milljónir króna fyrir það þegar það verður boðið upp þann annan mars næstkomandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung