ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Lýsing: Ekki fordæmisgildi fyrr en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:22 › 13. febrúar 2010

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing mun áfrýja dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær til Hæstaréttar. Segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi með skömmu millibili kveðið upp tvo dóma sem varða myntkörfulán og hafi komist að gagnstæðri niðurstöðu í þeim málum.

„ Báðum þessum málum verður áfrýjað til Hæstaréttar sem mun kveða upp endanlegan dóm um þetta álitaefni. Lýsing getur ekki horft til fordæmisgildis þessarar niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur fyrr en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. Það eru bæði hagsmunir Lýsingar og viðskiptavina okkar að sú niðurstaða liggi fyrir sem fyrst,“ segir í yfirlýsingu frá Lýsingu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.