ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Kristinn: Eva Joly eykur ágreininginn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:47 › 13. febrúar 2010

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, segir Evu Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, auka á ágreinning Íslendinga við Breta og Hollendinga. Kristinn segir ummæli Evu Joly í Morgunblaðinu vera í andstöðu við álit Evrópusambandsins, allra 27 landa þess og Noregs. Eva Joly hefur haldið því fram að íslenska ríkið beri ekki ábyrgð á Icesave-innistæðunum, að sögn Kristins.

„Íslensk stjórnvöld hafa fyrir löngu viðurkennt ábyrgð á lágmakstryggingunni.
Stjórnvöld landanna fylgdu lagalegri skoðun sinni eftir í reynd, hvar sem reyndi á innstæðutryggingarkerfið, með því að lýsa yfir ábyrgð ríkisins á innstæðum, jafnvel að fullu. Það gerðu íslensk stjórnvöld líka varðandi innstæður vistaðar á Íslandi.Það gerðu þau ekki í gegnum innstæðutryggingarsjóðinn heldur með beinni ábyrgð ríkissjóðs á nýju bankahlutafélögunum. Eva Joly er að gera ágreining við alla þessa aðila,“ ritar Kristinn á heimasíðu sína.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.