ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Kínverjar kynna hröðustu lest í heimi: Nær 350 kílómetra hraða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:12 › 13. febrúar 2010
Harmony-hraðlestin nær allt að 350 kílómetra hraða á klukkustund.

Harmony-hraðlestin nær allt að 350 kílómetra hraða á klukkustund.

Kínverjar hófu í gær notkun á hraðskreiðustu lest í heimi sem nær 350 kílómetra hámarkshraða. Það tekur hana aðeins þrjár klukkustundir að fara milli borganna Wuhan og Guangzou, eða 1.056 kílómetra, og aftur til baka.

Lestin sem um ræðir heitir G1049 Harmony Express og er hún að öllu leyti smíðuð í Kína með aðstoð tæknirisanna Siemens og Kawasaki. Um er að ræða algjöra byltingu því áður fyrr tók það lestina, sem áður þjónustaði íbúa borganna, ellefu klukkustundir að fara fram og til baka.

„Þetta er ótrúlegt. Ég man þegar samgönguráðherra landsins sagði að dag einn myndu Kínverjar eiga lest sem kæmist á 480 kílómetra hraða. Þá hélt ég að um eintóm kosningaloforð væri að ræða en nú sé ég að þetta er ekki svo fjarlægur draumur,“ segir viðskiptamaðurinn Luo sem ferðaðist með lestinni í sinni fyrstu ferð frá Ningbo til Guangzou.

Harmony-hraðlestinn er fyrsta skrefið í víðtækri áætlun kínverskra yfirvalda um samgöngubætur í Kína. Til stendur að eyða 480 milljörðum punda í gerð nýrra lesta og lestarteina á næstu fimm árum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.