ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Ísland verði miðstöð rannsóknarblaðamennsku

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:45 › 13. febrúar 2010
Wikileaks. Julian Assange, ritstjóri Wikileaks, hefur lýst því yfir að hugsanlega verði starfsemin flutt til Íslands.

Wikileaks. Julian Assange, ritstjóri Wikileaks, hefur lýst því yfir að hugsanlega verði starfsemin flutt til Íslands.

Fulltrúar Wikileaks, sem sérhæfir sig í því að leka viðkvæmum upplýsingum á netið, vonast til þess að Ísland verði innan tíðar athvarf fyrir rannsóknarblaðamennsku. Ekki er langt síðan fulltrúar Wikileaks lýstu þessu yfir.

Í viðtali við BBC segir Julian Assange, ritstjóri Wikileaks, að vonast sé til þess að ný lög sem eru í burðarliðnum muni veita þess háttar skjól fyrir leka viðkvæmra upplýsinga.

Íslenskur vinnuhópur, Icelandic Modern Media Initiative, eða Félag um stafrænt frelsi á Íslandi hefur að undanförnu beitt sér fyrir þess háttar lagabreytingum. Á vefsíðu vinnuhópsins kemur fram að eftir helgi verði lögð fram þingsályktunartillaga um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis.

Wikileaks birti meðal annars viðkvæmar upplýsingar í tengslum við íslenska hrunið síðastliðið sumar þegar utanaðkomandi aðili lét lánabók Kaupþings inn á síðuna. Síðan þá hafa frekari gögn tengd hruninu ratað inn á síðuna og heimsóttu fulltrúar síðunnar Ísland á liðnu ári.

„Ef þessar breytingar verða að veruleika þá mun það hvetja alþjóðleg fjölmiðla- og internetfyrirtæki til að flytja hluta starfsemi sinnar þangað,“ sagði Assange í samtali við BBC í gær en hann hefur áður lýst því yfir að hugsanlega verði starfsmei Wikileaks flutt til Íslands.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.