Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Forsvarsmenn Google hafa ákveðið að verða við beiðni lögreglunnar í Windsor í Ontario í Kanada um að fjarlægja mynd, sem sýnir vettvang morðs, úr forriti sínu Google Street View.
Forritið sem um ræðir gefur netnotendum tækifæri á að skoða þrívíddarmyndir af götum borga og bæja út um allan heim. Bifreið Google, sem notuð er til að taka upp þrívíddarmyndirnar, ók framhjá vettvangi morðs fyrir utan Leopards Lounge næturklúbbinn í Windsor þann 21. júlí síðastliðinn. Var 24 ára gamall karlmaður stunginn til bana á bílastæði.
Á myndunum sást meðal annars greinilega blóðpollur úr fórnarlambi árásarinnar og gulir borðar sem lögreglan hafði komið fyrir. Myndirnar voru fjarlægðar á fimmtudag að því er fram kemur í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung