ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Friðrik: Þúsundir lántakenda bíða á hliðarlínunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:30 › 13. febrúar 2010

Friðrik Ó. Friðriksson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir samtökin fagna dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla. Þar með var lántakandi sýknaður af kröfu fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar. „Þetta er tímamóta dómur og við tökum honum fagnandi,“ sagði Friðrik í samtali við DV.is. Hann segir Áslaugu Björgvinsdóttur, héraðsdómara, setja lánveitendum stólinn fyrir dyrnar með ánægjulegum hætti.

Friðrik segir alveg ljóst að verið var að keyra prófmál og sé ljóst að þúsundir lántakenda bíði á hliðarlínunni og munu sækja á dómskerfið í kjölfar þessa dóms. Hann segir lántekendur þó munu bíða átekta í framhaldinu en dómnum verður áfrýjað að hálfu Lýsingar. Friðrik segir ríki og banka kunna mögulega að verða skaðabótaskyld ef þeir valda tjóni á grundvelli ólögmætra samninga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.