Ein af umfangsmestu aðgerðum embættis sérstaks saksóknara var gerð í Lúxemborg í vikunni. Þurfti embætti sérsaks saksóknari að afla sérstakrar heimildar frá dómara til að afla gagna í málinu. Um var að ræða fjögur aðskilin mál og snýst meðal annars um hlutabréfakaup í gamla Kaupþingi í þeim tilgangi að halda verði bréfa bankans uppi.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarps. Þar sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, að fjöldi lögreglumanna frá Lúxemborg hafi tekið þátt í húsleitunum sem meðal annars voru gerðar í höfuðstöðvum Baque Havilland, sem tók við starfsemi Kaupþings á sínum tíma. Fá fordæmi séu fyrir því að yfirvöld í Lúxemborg hafi tekið þátt í svo umfangsmiklum aðgerðum.
Þegar Ólafur var spurður að því hvort það væri til marks um alvarleika málsins sagðist hann ekki geta tjáð sig um það. Ýmislegt hefði þó legið að baki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna