ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Eygló vill funda strax vegna gengistryggðra lána

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:23 › 13. febrúar 2010

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins óskar eftir að haldinn verði fundur í viðskiptanefnd þar sem farið verði yfir gengistryggð lán og lagalega stöðu þeirra í ljósi dómsins sem féll í gær í héraðsdómi Reykjavíkur. Héraðsdómur sýknaði bíleigandi af kröfum fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Komst dómarinn að þeirri niðurstöðu að ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla.

Eygló óskar eftir að á fund nefndarinnar mæti fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna, talsmaður neytenda, fulltrúi neytendasamtakanna, fulltrúar viðskiptaráðuneytis/fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands auk Björns Þorra Viktorssonar lögmanns. Þá vill Eygló utandagskrárumræðu um málið við Gylfa Magnússon, viðskiptaráðherra.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.