ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Eldur í skipi við Hafnarfjarðarhöfn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:15 › 13. febrúar 2010
Eldurinn kom upp í vélarrúmi skipsins.

Eldurinn kom upp í vélarrúmi skipsins. Mynd DV

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út síðdegis vegna elds um borð í skipinu Oddeyrinni sem stendur við Hafnarfjarðarhöfn. Tilkynnt var um mikinn reyk í skipinu skömmu fyrir klukkan fimm en grunur leikur á að eldurinn hafi komið upp í vélarrúmi skipsins.

Oddeyrin er 1300 tonn að stærð og er í eigu Samherja. Skipið liggur við suðurhluta Hafnarfjarðarhafnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.