Steingrímur sagði í fréttum RÚV að um væri að ræða ótímabærar vangaveltur. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir
Svo gæti farið að gjaldþrotalögum hér á landi verði breytt þannig að selja megi eignir úr þrotabúi Landsbankans á einu bretti í stað margra hluta. Þetta er fullyrt á vef breska blaðsins Guardian en þar segir að Íslendingar hafi þegar lagt þetta til við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gaf hinsvegar lítið fyrir þessar hugmyndir og í kvöldfréttum Sjónvarps var haft eftir honum að þetta séu ótímabærar vangaveltur. Í frétt Guardian kemur hinsvegar fram að Steingrímur sé hugmyndasmiðurinn að baki tillögunni. Var haft eftir Steingrími í fréttum RÚV að Bretar og Hollendingar hafi ekki tekið jákvætt í beiðnina af þeirri einföldu ástæðu að samningaviðræður við þarlend yfirvöld séu ekki hafnar.
Að því er fram kemur í frétt Guardian er stjórnarandstaðan á Íslandi sögð styðja tillöguna og kemur fram að verði sú málamiðlun að veruleika verði ekkert úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-málið sem fyrirhuguð er þann sjötta mars næstkomandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna