Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Frá Hafnarfjarðarhöfn. Slökkviliðið hefur náð að slökkva eldinn sem kom upp í Oddeyrinni. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd Guðmundur Vigfússon
Slökkviliðið hefur náð að slökkva eldinn sem kom upp í vélarrúmi skipsins Oddeyrinni við Hafnarfjarðarhöfn síðdegis í dag. Eldurinn var sem fyrr segir bundinn við vélarrúm skipsins en það var rétt fyrir klukkan fimm í dag sem tilkynnt var um mikinn reyk um borð í skipinu.
Slökkviliðið vinnur nú að því að kæla vélarrúmið áður en það verður reykræst. Ekki liggur fyrir hvað olli því að eldurinn kom upp og þar sem enn er töluverður reykur um borð í skipinu er erfitt að meta tjónið. Oddeyrin er 1.357 brúttótonna skuttogari í eigu Samherja á Akureyri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun