ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Björn Valur: Gaman að sjá hverjar kröfur lánastofnana verða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:00 › 13. febrúar 2010

„Fari svo að Hæstiréttur dæmi þessi lán ógild er ljóst að eitthvað mun þurfa að koma í staðin og verður gaman að sjá hverjar kröfur lánastofnana verða í því sambandi,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, um dóminn sem féll í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur þess efnis ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla.

Björn Valur segir að það hljóti sömuleiðist að skipta máli hverjar kröfur lántakenda voru á þeim tíma sem lán voru tekin, það er, hvort þeir töldu hag sínum betur borgið með því að taka lána tengdum stöðu íslensku krónunna gagnvart öðrum miðlum. „Hver er ábyrgð þeirra? Það eru ekki svo mörg ár (mánuðir) síðan það var talið hið mesta óráð, bæði af lánveitendum og lántakendum, að taka íslensk, verðitryggð lán þegar í boði var að taka þau á lágum vöxtum tryggð í erlendri mynt. Það verður ekki bæði haldið og sleppt,“ skrifar Björn Valur á heimasíðu sína.

Hann segir að úr þessu verður að fást skorið með afgerandi hætti og það fyrr en seinna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.