Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Stúlka á fjórða aldursári virðist hafa sloppið ótrúlega vel þegar hún féll út um glugga úr fjölbýlishúsi í Þingholtunum á sjötta tímanum í kvöld. Lenti stúlkan á bíl sem var fyrir neðan og virðist hann hafa tekið af henni mesta fallið og mögulega bjargað því að ekki fór verr.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um málið klukkan 17.52. Er talið að fallið hafi verið allt að sex metrar. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en að sögn varðstjóra var það mat lögreglumanns sem kom á vettvang að stúlkan hafi sloppið ótrúlega vel. Ekki er vitað um tildrög þess að stúlkan féll út um gluggann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna