ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Stórfelld kannabisræktun í gömlu bankahúsnæði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:56 › 12. febrúar 2010
Ágætis ræktunarskilyrði í bankahvelfingunni.

Ágætis ræktunarskilyrði í bankahvelfingunni.

  • Virðuleg bygging. Ólögleg starfsemi.

    Virðuleg bygging. Ólögleg starfsemi.

Hver segir að húsnæði sem áður hýsti virðulega bankastarfsemi þurfi að standa ónotað og liggja undir skemmdum? Óprúttnir kannabisræktendur í Bristol fundu í það minnsta not fyrir gamalt húsnæði NatWest-bankans á einni af aðalgötum borgarinnar. Lögreglan gerði áhlaup á húsnæðið á dögunum og hafði upp úr krafsinu kannabis að andvirði um 200 milljóna króna.

Yfir tvö þúsund plöntur voru þá í ræktun í tíu mismunandi herbergjum bankahúsnæðisins fyrrverandi, meira að segja hvelfingin var notuð undir kannabis.

Tveir víetnamskir karlmenn fundust í felum í kannabisfrumskógnum og voru þeir handteknir.

Um gríðarlega margbrotna ræktun var að ræða því ekki aðeins var allur búnaður eins og hann gerist bestur, heldur höfðu kannabisbændurnir líka haft vit á því að tengja fram hjá rafmagnsnotkunarmæli byggingarinnar. Það gerðu þeir til að vekja ekki grunsemdir yfirvalda varðandi óhóflega rafmagnsnotkun.

Lögreglan í Bristol segir þetta lang stærstu ræktun sinnar tegundar sem nokkru sinni hafi verið upprætt á þeim slóðum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.