ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Ríkið alltaf skuldbundið gagnvart innstæðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:21 › 12. febrúar 2010
Jónína S. Lárusdóttir ráðuneytisstjóri í Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Jónína S. Lárusdóttir ráðuneytisstjóri í Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Íslensk stjórnvöld véfengdu ekki fyrir bankahrun skyldu íslenska ríkisins til þess að ábyrgjast að Tryggingasjóður innstæðueigenda gæti staðið undir lágmarkstryggingum innstæðna í íslenskum bönkum í Bretlandi og Hollandi.
Þetta má ráða af bréfum sem DV birtir hér að neðan í íslenskri þýðingu. Hið fyrra er ritað 20. ágúst 2008 til breska fjármálaráðuneytisins og er svar viðskiptaráðherra við áhyggjum Breta meðal annars af stöðu Tryggingasjóðs innstæðueigenda. Það er undirritað af Áslaugu Árnadóttur starfandi ráðuneytisstjóra á þeim tíma. Hið síðara er undirritað af Jónínu S. Lárusdóttur núverandi ráðuneytisstjóra, en hún hefur samkvæmt heimildum DV fengið bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis.
Þess má geta að ekki eru um nein leyniplögg að ræða af hálfu íslenskra stjórnvalda enda hafa þau verið aðgengileg á upplýsingavefnum www.island.is síðan í júní á síðasta ári.

---

Reykjavík 20. Ágúst 2008

Mr. Clive Maxwell
HM Treasury
I Horse Guards Road
London SWIA 2HQ
United Kingdom

Kæri herra Maxwell
Hér vísast til viðræðna okkar þann 31. júlí og til bréfs yðar frá 7. ágúst þar sem þú spyrð nokkurra spurninga varðandi Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta. Þess utan vísast hér til tölvupósts okkar frá 14. ágúst með athugasemdum af okkar hálfu um sama mál, ef frá eru taldar spurningar 2 og 5. Hér verða veitt svör við þessum tveimur síðustu spurningur.

Ef þannig vildi til – sem við teljum afar ólíklegt – að stjórn Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta tækist ekki að fjármagna sjóðinn á fjármálamarkaði, fullvissum við yður um að ríkisstjórn Íslands mundi gera allt sem ábyrgt stjórnvald mundi gera við slíkar aðstæður, þar á meðal að liðsinna Tryggingasjóðnum að útvega nauðsynlegt fjármagn til að standa undir lágmarks innstæðutryggingunni.

Þar að auki viljum við benda á að lögin um Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta voru sett árið 1998 sem ráðstöfun til þess að fullgilda tilskipun 94/19/EC um sama efni. Þessi lög eru nú til endurskoðunar hjá viðskiptaráðuneytinu í ljósi þróunarinnar á fjármálamarkaðnum á síðustu árum. Þar er meðal annars litið til fjármögnunar og fyrirkomulags, Ráðgert er að leggja frumvarp til laga sem að þessu lýtur á Alþingi sem kemur saman í byrjun október.

Athygli er vakin á því að sú staða gæti komið upp þar sem fjármálafyrirtæki með heilbrigt eigið fé stæði frammi fyrir lausafjárvanda ef innstæðueigendur tækju út sjóði sína í miklum mæli af einhverjum ástæðum. Við slíkar aðstæður mundi Seðlabanki Íslands, sem lánveitandi til þrautavara koma til aðstoðar með lausafé. Íslenska ríkisstjórnin mundi styðja Seðlabankann í slíkum aðgerðum. Slíkar aðstæður yrðu þannig ekki að neinum vanda fyrir Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta.

Við leggjum áherslu á að ríkisstjórnin er fyllilega meðvituð um skyldur sínar gagnvart EES-samningnum að því er varðar Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta og mun standa við þær skuldbindingar.

Áslaug Árnadóttir

---

Mr. Clive Maxwell
HM Treasury
I Horse Guards Road
London SWIA 2HQ
United Kingdom
Kæri herra Maxwell
Neðangreint er ritað með hliðsjón af viðræðum þínum við ráðuneytið nú um helgina.
Ef á þarf að halda mun ríkisstjórn Íslands styðja Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta við nauðsynlega fjármögnun til þess að fullnægja skuldbindingum um lágmarkstryggingar innstæðna fari svo að Landsbankinn og starfsemi hans í Bretlandi bresti.
Fyrir hönd ráðherra,

Jónína S. Lárusdóttir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.