Tólf ráðherrar og embættismenn, sem grunaðir eru um vanrækslu, yfirsjónir eða mistök í starfi í aðdraganda bankahrunsins fengu greinargerðir sendar heim til sín frá rannsóknarnefnd Alþingis.
Þeir hafa tíu daga til að andmæla. Ellefu þessara nafna eru þegar kunn. Þingmannanefnd mun taka ákvarðanir um örlög þessara einstaklinga.
„Við tilgreinum þau atriði þar sem við teljum að þeim hafi orðið á mistök eða gerst sek um vanrækslu í störfum sínum. Það eru aðeins einstaklingar sem svona háttar um sem fá að njóta andmælaréttar. Það fær enginn enginn niðurstöður skýrslunnar í hendur fyrr en skýrslan kemur út,“ sagði Páll Hreinsson formaður rannsóknarnefndar Alþingis í samtali við DV í lok desember, þegar upphaflega stóð til að senda út greinargerðir til þeirra sem kunna að bera ábyrgð á bankahruninu. Páll tók jafnframt fram að greinargerðir væru sendar þeim sem njóta eiga andmælaréttar og að um væri að ræða menn í opinberum störfum.
Með orðum Páls er vísað til þess að bankamenn eða aðrir, sem grunaðir eru um brot á lögum í tengslum við bankahrunið, sæti rannsókn af hálfu sérstaks saksóknara og verði dregnir fyrir dóm.
Meðal hinna grunuðu í málinu eru:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra
Árni M. Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra
Jónas Fr. Jónsson fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Jónína S. Lárusdóttir ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneyti
Davíð Oddsson fyrrverandi seðlabankastjóri.
Ítarlega er fjallað um málið í DV í dag





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna