Óvenjulegar deilur eru nú sprottnar upp milli annarsvegar Singapore og hinsvegar Indónesíu og Malasíu. Leikur grunur á að óprúttnir aðilar í Singapore hafi stolið milljónum tonna af sandi frá nágrannaríkjunum og virðist þessi tegund glæpaiðnaðar blómstra sem aldrei fyrr.
Skortur á sandi í Indónesíu
Ástæðan er sú að mikill efnahagslegur uppgangur hefur verið í Singapore á undanförnum árum og hefur eftirspurn eftir sandi, sem meðal annars er notaður við landfyllingar, aldrei verið meiri. Eftir að útflutningsbann var lagt á sandútflutning í Indónesíu, Kambódíu og Víetnam er þessi nýji smygliðnaður tekinn að blómstra í Singapore og eru menn tilbúnir að ganga langt til að fá krónur í vasann.
Heilu eyjarnar gætu horfið
Nú er svo komið að þjófar frá Singapore leggja leið sína á strendur nágrannaríkja sinna og stela heilu bílförmunum af sandi í skjóli nætur. Veldur þetta miklum áhyggjum yfirvalda í Indónesíu og Malasíu þar sem afleiðingarnar eru slæmar fyrir náttúruna. Óttast yfirvöld í Indónesíu að heilu eyjarnar gætu hreinlega horfið vegna ágangs glæpamanna frá Singapore.
Dvergríkið Singapore
Singapore er dvergríki í alþjóðlegum skilningi og eitt þéttbýlasta ríki heims. Það er aðeins 710 ferkílómetrar að stærð en á því svæði búa tæplega fimm milljónir manna. Til samanburðar er Ísland 103 þúsund ferkílómetrar. Veldur þetta því að mikill skortur er á landsvæði. Yfirvöld hafa þó hingað til ekki látið skortinn á sig fá og hafa flutt inn sand til landfyllingar í miklum mæli. Er talið að landið hafi stækkað um heil tuttugu prósent frá sjöunda áratug liðinnar aldar.
Stríð sem fer fram í kyrrþey
„Þetta er stríð um náttúruauðlindir og það fer fram í kyrrþey,“ segir Nur Hidayati, talsmaður Greenpeace í Indónesíu. „Ástandið er orðið grafalvarlegt og hafa hitabeltiseyjarnar Nipah, Karimun-eyjar og fleiri dvergeyjar undan ströndum Riau minnkað gríðarlega og eru við það að hverfa í hafið,“ segir hann.
Ekkert eftirlit
Vegna skortsins á sandinum í Singapore eiga þarlendir glæpamenn auðvelt um vik með að koma sandinum til landsins. Virðist strandgæslan í Singapore leiða smyglið hjá sér og eru skip sem innihalda sand sem tekinn hefur verið með ólöglegum hætti sjaldnast stöðvuð.
Spilltir stjórnmálamenn græða
Þegar sandinum hefur verið komið til landsins er hann seldur til fyrirtækja og eru spilltir stjórnmálamenn sem tengdir eru spilltum stórfyrirtækjum sagðir græða á tá og fingri á iðjunni. Á meðan standanáttúruparadísir í Indónesíu frammi fyrir óbætanlegum skemmdum; ekki bara eyjarnar heldur einnig blómlegt dýra- og jurtalíf líf í kringum eyjarnar.
Sandur í skiptum fyrir kynlíf
Ekki er nema mánuður síðan 34 opinberir starfsmenn í Malasíu voru handteknir fyrir að liðka fyrir ólöglegum viðskiptum með sand til Singapore. Fengu þeir peningagreiðslur og kynlífsgreiða fyrir, að því er fram kemur í frétt Telegraph af málinu.
Gríðarlegt magn
Fyrrverandi forsætisráðherra Malasíu segir að 700 bílfarmar af sandi fari frá Malasíu til Singapore á hverjum einasta degi. Að sama skapi er talið að 300 milljónum rúmmetra af sandi sé smyglað frá Indónesíu á hverju ári.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung