ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Misheppnaður bankaræningi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:20 › 12. febrúar 2010
Maðurinn kom að læstum dyrum þar sem bankinn var lokaður. Starfsfólk bankans hló að honum þar sem þeir töldu að um grín væri að ræða.

Maðurinn kom að læstum dyrum þar sem bankinn var lokaður. Starfsfólk bankans hló að honum þar sem þeir töldu að um grín væri að ræða.

Bankaræningjar og glæpamenn almennt eru misvel gefnir eins og fjölmörg dæmi hafa sýnt. Bankaræningi sem reyndi að ræna banka í Kirchheim í Austurríki fer líklega ekki í sögubækurnar fyrir að vera sá skarpasti, að sögn lögreglunnar í bænum.

Þannig er mál með vexti að ræninginn kom að lokuðum dyrum í útibúinu. Ástæðan fyrir því að dyrnar voru læstar var sú að bankinn hafði lokað snemma og voru aðeins nokkrir starfsmenn útibúsins innandyra á námskeiði. Þrátt fyrir það barði maðurinn á hurðina með byssu sem hann var með á sér og krafðist þess að vera hleypt inn.

„Við héldum að þetta væri einhverskonar æfing eða grín. Við hlógum að honum það virtist bara gera hann enn reiðari,“ segir starfsmaður bankans sem var að ljúka vinnu sinni. Bankaræninginn flúði af vettvangi tómhentur en upptaka af atvikinu náðist á öryggismyndavél.

Bankaræningjans, sem var með Barack Obama grímu á andlitinu, er nú lokað en ætla má að hann muni athuga með opnunartíma bankans ef hann þorir að láta til skarar skríða aftur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.