ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Helgi Seljan: Kjaftfor og andstyggilegur krakki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:26 › 12. febrúar 2010

Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan var nýbúinn að rífa fjölskylduna upp með rótum og flytja norður á Akureyri til að starfa í Svæðisútvarpi Norðurlands þegar uppsagnir skóku RÚV. Í kjölfarið var starfið fyrir norðan ekki lengur í boði þannig að í dag býr Helgi einn í herbergi fyrir sunnan svo hann geti unnið í Kastljósi á meðan kona hans og dóttir búa á Akureyri.

Helgi segist, í viðtali við helgarblað DV, hafa verið erfiður unglingur sem hafi verið rekinn oftar en einu sinni úr skóla. Hann ræðir um reiðina, óregluna, föðurhlutverkið sem hann óttaðist, RÚV, kreppuna og starf sitt sem fjölmiðlamaður í hringiðu Icesave-umræðu.

Kjaftfor og andstyggilegur krakki
Helgi og Katrín Rut Bessadóttir kynntust þegar þau voru bæði blaðamenn á DV árið 2004. Þá var hann nýfluttur í borgina frá Reyðarfirði, þaðan sem hann er fæddur og uppalinn. Hann hafði áður gert tilraun til að búa í borginni þegar hann skellti sér í framhaldssskóla en flosnaði fljótlega upp úr náminu og fór heim aftur og á sjóinn. Í nokkur ár virtist Helgi ekki vita í hvorn fótinn hann ætti að stíga og á tímabili var hann í mikilli óreglu. „Ég vissi lengi vel ekkert hvað ég vildi gera þegar ég stækkaði. Var reiður ungur maður fram eftir öllu. Reiðir ungir menn vita sjaldan af hverju þeir eru reiðir og fyrir vikið eru þeir sjálfum sér verstir. Þannig var ég bara og leitaði því í að vera slæmur félagsskapur, en lenti ekki í slæmum félagsskap. Ég var kjaftfor og oft óforskammaður krakki. Andstyggilegur við þá sem voru í kringum mig. Ég hefði ekki nennt að vera kennarinn minn. Ég get samt varla hafa verið algjörlega óalandi og óferjandi því það eru til bekkjamyndir þar sem ég lít út fyrir að vera algjör engill,“ segir Helgi sem enn á sama vinahópinn frá Reyðarfirði og á unglingsárunum.

Ítarlegt viðtal við Helga Seljan er í helgarblaði DV


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.