ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Handtekin fyrir að þvo þvott

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:26 › 12. febrúar 2010
Gott að henda í vél stöku sinnum. Kannski ekki í ókunnugum húsum og í leyfisleysi.

Gott að henda í vél stöku sinnum. Kannski ekki í ókunnugum húsum og í leyfisleysi. Mynd tengist efni fréttar ekki

Tvennt var handtekið af lögreglu í miðborginni í gær fyrir að þvo þvott. Ástæða afskipa lögreglunnar var sú að fólkið var við þessa iðju í ókunnugu húsi og án heimildar húsráðanda.

Nokkur önnur þjófnaðarmál komu til kasta lögreglunnar í gær og voru þjófarnir á ýmsum aldri. Þeir yngstu eru 12 ára en þar er um að ræða tvær stelpur sem stálu fatnaði úr verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu.

Kona um tvítugt var handtekin fyrir þjófnað í verslun í miðborginni í gær. Hún var ekki mjög samvinnufús við lögreglu og neitaði meðal annars að segja til nafns. Konan, sem var í annarlegu ástandi, var færð í fangageymslu.
 



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.