ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Gekk berserksgang með exi í Las Vegas

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:02 › 12. febrúar 2010
  • Hrottafenginn fjölskylduharmleikur í Las Vegas.

    Hrottafenginn fjölskylduharmleikur í Las Vegas.

Karlmaður vopnaður exi gekk berserksgang á heimili fjölskyldu sinnar í Las Vegas í gær með þeim afleiðingum að ungur drengur lét lífið og tvær konur voru fluttar á sjúkrahús lífshættulega slasaðar.

Maðurinn var handtekinn af lögreglu á vettvangi. Maðurinn sjálfur var með einhverja áverka eftir atburðinn en þeir eru ekki taldir lífshættulegir. Lögreglan segir að fólkið tengist allt fjölskylduböndum.

Fleiri voru staddir í húsinu þegar harmleikurinn átti sér stað en þá sakaði ekki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.